Segja frá?
+4
Mia81
akril
Júníus
junhfj
8 posters
Page 1 of 1
Segja frá?
Hvenær stefnið þið að því að segja nánustu ættingjum frá og svo minna tengdum og hvernig? Er mjög óákveðin hvenær ég vil gera þetta.
junhfj- Posts : 3
Join date : 2015-10-29
Re: Segja frá?
Við erum búin að segja tengdó og systkinum bróður míns frá en við viljum bíða fram yfir snemmsónar með að segja foreldrum mínum frá. Svo segjum við vinum og ættingjum líklega bara eftir 12 vikna sónar.
Júníus- Posts : 10
Join date : 2015-10-29
Re: Segja frá?
Við höfum ekki sagt neinum frá langar að fá að allt sé ok í snemmsónar áður en við segjum frá
akril- Posts : 4
Join date : 2015-11-03
Re: Segja frá?
Við vorum í meðferð hjá Art svo allir okkar nánustu vissu af þessu. Flestar mínar vinkonur líka og yfirmaðurinn minn. Ætlum að bíða með rest fram yfir 12 vikna sónar (sem verður reyndar 13. vikna sónar þar sem að ég er úti).
Mia81- Posts : 3
Join date : 2015-10-29
Re: Segja frá?
Höfum ekki sagt neinum frá, komst að þessu í gær hjá kvennsa. En á síðustu meðgöngu sagði ég mömmu á undan karlinum haha hun hringdi á meðan ég var ap bíða eftir nipurstöðunum og ég var svo spennt að ég sagði henni var þá komin um 4 vikur
Snaem- Posts : 3
Join date : 2015-11-04
Re: Segja frá?
Ég er búin að vera slöpp, lágþrýst og bradycard, og líður því yfir mig stundum. Við ákváðum að láta okkar nánustu vita þar sem ég gæti þurft aðstoð, verð komin níu vikur á mánudaginn.
BAM- Posts : 5
Join date : 2015-11-07
Re: Segja frá?
Við fórum í snemmsónar í dag og sögðum tengdó frá eftir það, svo fer að koma að því að segja fleirum
akril- Posts : 4
Join date : 2015-11-03
Re: Segja frá?
Við sögðum foreldrum okkar frá stuttu eftir að við fórum í snemmsónar. Ætlum að segja fleirum frá eftir 12 vikna sónarinn.
Has16- Posts : 4
Join date : 2015-10-29
Re: Segja frá?
Við erum búin að segja nánustu vinum og foreldrum frá þessu núþegar. Síðan förum við í 12 vikna sónar eftir tæpar 2 vikur og þá ætlum við að gera þetta alveg opinbert. Held við munum samt ekki pósta neinum myndum á Facebook. Langar bara að segja frá í eigin persónu
juni2016- Posts : 4
Join date : 2015-10-29
Re: Segja frá?
Hahaha! Ég var að sjá að ég skrifaði systkinum bróður míns en meinti auðvitað systkinum mannsins míns!
Júníus- Posts : 10
Join date : 2015-10-29
Page 1 of 1
Permissions in this forum:
You cannot reply to topics in this forum