Einkenni og hcg
+3
junhfj
baby2
Júníus
7 posters
Page 1 of 1
Einkenni og hcg
Eruð þið komnar með einhver einkenni? Ég er endalaust þreytt, illt í bakinu, smá ógleði og get varla látið bolinn minn snerta brjóstin þau eru svo aum. Er búin að fara í blóðprufu til að athuga hcg hormónin og þau eru að hækka vel milli daga svo að vonandi er þetta að takast núna. Missti fyrr á þessu ári og er svolitið stressuð en reyni að vera hóflega jákvæð.
Júníus- Posts : 10
Join date : 2015-10-29
Re: Einkenni og hcg
Ég er aðallega bara þreytt og endalaust svöng. En vonandi gengur þetta vel núna! Einkenni segja alls ekki allt, stutt síðan ég var ólétt síðast og varð líka bara þreytt og svöng þá
baby2- Posts : 2
Join date : 2015-11-01
Re: Einkenni og hcg
Ég er endalaust þreytt og sef helst ca 12 tíma á nóttu ef ég get en er samt þreytt, ógleðin kemur og fer en næ að halda henni sæmilega niðri með að borða um leið og ég fer að finna fyrir henni en er verst þegar ég labba eða er í bílnum.
junhfj- Posts : 3
Join date : 2015-10-29
Re: Einkenni og hcg
Ég er alveg nokkuð hress. Hef að mestu sloppið ógleðina en hef þó verið ansi lystarlaus og stundum óglatt á kvöldin en er núna komin 9v5d og það er að mestu búið. Er ekkert svo hræðilega þreytt, sef í 10 tíma á nóttu og er þá hress allan daginn. Brjóstin eru stór og aum en annars er þetta minna en ég bjóst við. Missti fyrr í sumar og var með miklu meiri einkenni þá. Það er víst allt til í þessu
Mia81- Posts : 3
Join date : 2015-10-29
Re: Einkenni og hcg
Ég er komin 8 vikur í dag. Ég hef verið með mjög viðkvæm og aum brjóst alveg frá byrjun, sí pissandi, er frekar þreytt og er alltaf sofnuð umkl. 9-10 á kvöldin og svo hefur mér verið óglatt. Ógleðin er samt mis mikil, stundum er hún viðvarnadi allan daginn og slæm en aðra daga er þetta bærilegt. Ég missti í vor og er því mjög stressuð líka. Hef ekki farið í snemmsónar og ætla ekki að gera það. Hef alltaf frain en á síðustu meðgöngu fannst mér það vera falskt öryggi. Hélt að ég væri komin yfir mesta hættu tímann en svo missti ég. Fer til ljósu á tíundu viku og svo snemmsónar komin 12 vikur og 2 daga.
títluskott- Posts : 4
Join date : 2015-10-30
Re: Einkenni og hcg
Ógleðin er mismikil eftir dögum og ég er búin að vera að kasta upp ca annan hvern dag undanfarið. Mér líður samt betur ef ég borða en matarlystin er algjörlega breytt. Get ekki hugsað mér sumar fæðutegundir og ég er almennt frekar lystarlaus. Ég er frekar þreytt og þarf mikinn svefn, auk þess sem ég er einhvern veginn orkuminni yfir daginn. Svimar stundum ef ég stend of snöggt upp. Brjóstin eru líka stærri og aum viðkomu.
Er komin 9 vikur og þetta er búið að vera meira og minna stöðugt síðan á viku 5.
Er komin 9 vikur og þetta er búið að vera meira og minna stöðugt síðan á viku 5.
juni2016- Posts : 4
Join date : 2015-10-29
Re: Einkenni og hcg
Það blæddi aðeins hjá mér í dag, komin 7v2d. Er einhver hér með reynslu af blæðingum snemma á meðgöngu? Hef misst einu sinni og þá var það alveg á hreinu þegar það byrjaði að blæða með þvílíkum verkjum að ég væri að missa, ég finn ekki fyrir sömu einkennum núna.
Júníus- Posts : 10
Join date : 2015-10-29
Re: Einkenni og hcg
Hæhæ
Á tvær meðgöngur að baki. Á báðum blæddi í kringum 6-7 viku. Í fyrra skiptið kom bara aðeins bleikt í pappírinn og allt var síðan í góðu. Á seinni meðgöngunni fossaði eldrauð blæðing bara uppúr þurru. Tilfinningin var eins og eitthvað hefði rifnað en engir verkir fylgdu. Ég fór í sonar og engin blæðing var í leginu. Ég missti reyndar nokkrum vikum seinna (dulið fósturlát) en það tengdist þessari blæðingu ekki. Hvernig er blæðingin og er einhverjir verkir?
Á tvær meðgöngur að baki. Á báðum blæddi í kringum 6-7 viku. Í fyrra skiptið kom bara aðeins bleikt í pappírinn og allt var síðan í góðu. Á seinni meðgöngunni fossaði eldrauð blæðing bara uppúr þurru. Tilfinningin var eins og eitthvað hefði rifnað en engir verkir fylgdu. Ég fór í sonar og engin blæðing var í leginu. Ég missti reyndar nokkrum vikum seinna (dulið fósturlát) en það tengdist þessari blæðingu ekki. Hvernig er blæðingin og er einhverjir verkir?
títluskott- Posts : 4
Join date : 2015-10-30
Re: Einkenni og hcg
Frá viku 6 hefur mér liðið HRÆÐILEGA, ógleði allan daginn, nánast alltaf, kúgast endalaust, þreytt og líður eins og ég sé veik. Þetta tekur á ... Ég sá þetta aðeins öðruvísi fyrir mér haha, vonandi fer þetta að minnka.
blaberid- Posts : 2
Join date : 2015-11-01
Re: Einkenni og hcg
Hún virðist vera alveg hætt, það kom bara smá bleikt/brúnt í pappírinn í gær en það hefur ekki komið neitt meira.
Júníus- Posts : 10
Join date : 2015-10-29
Page 1 of 1
Permissions in this forum:
You cannot reply to topics in this forum